Thursday, December 08, 2005

Ég var næstum búin að gleyma...

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og.........

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

Comments:
ég skil ekki???
 
Sylvía
 
pant ég... :)
 
ég á enga bloggsíðu en ég vil vera með! mamman
 
Pant ég líka :)
 
Til þín Lóa, þetta er bara að svara þessum spurningum um manneskjuna sem setur nafnið í kommentakerfið

1. Fyndin, sniðug og fellow Gilmore Girls fan.
2.Matarlagið hans Tedda með grænum baunum.
3. Bacardi Breezer...ekki spurning!
4. Klikkaða stelpan sem vildi henda vatnsblöðrum í einhverri stelpuárás...hélt þú værir ekki alveg í lagi.
5. Úlfaldi
6. Er Tryggvi sá eini?
 
Sillinn minn

1. Gerðir bestu samlokur í heimi á grillinu á Sólvó með pítusósu, ein besta manneskja sem ég hef kynnst, á enn eftir að heyra manneskju geta sagt 1 ljótt orð um þig!
2. Nágrannalagið
3. pítusósubragð
4. Ég eiginlega veit það ekki, finnst í minningunni eins og ég hafi ekki þekkt þig neitt og svo farið úr því í að þú værir besta vinkona mín! Stóra minningin er samt brúðkaupskjólastundin í Marks og Spencer í London!!!
5. Hvolp
6. Má ég vera brúðarmey þegar þið giftið ykkur loksins ? ;)
 
Árni sæti

1. Eiginmaðurinn, allavegana sá fyrsti ;), knúsarinn ógurlegi, töffari með ótrúlega viðkvæma sál!

2. Boom Boom shake shake the room!

3. Appelsín all the way!

4. Hahahaha.....bank bank klukkan 5 um morgun á hótelherbergi í Bene og inn kemur SMILEY með sætu vini sína og þar með hófst einn örlagaríkasti vinskapur ævi minnar. Ekki bara kynnti ég þig fyrir konunni þinni en þú mig fyrir karlinum mínum!!!

5. Bangsi

6. Hvaðan kom þessi smiley árátta sem endaði í tattoo af Smiley á löppinni á þér?
 
Mamman mín

1. Besta mammsa í heimi auðvitað og gjafmildasta manneskja sem ég hef kynnst. Eiginlega of góð!!!! Einnig tilnefning fyrir Bestu hjúkkuna eftir að hafa hjúkrað mér öll árin sem ég bjó heima!

2. CON AIR...manstu?

3. úff...bara bragðið af mömmumat eins og hann leggur sig!

4. Stórt er spurt...á Ásvallagötunni þegar botninn pompaði úr rúminu mínu og ég fékk að koma uppí og svo þega þú sóttir mig í Brekku þegar ég reyndi að kaupa kúlur fyrir 500 kr með litlum árangri!

5. Kisa auðvitað!

6. Það er svo margt....hvenær förum við í næstu mæðgna ferð?
 
Lína fína

1. Ofurheili og öfurnörd!!! Ótrúlega fyndin og góður sponsor!!!!

2. Nick Cave minnir mig á þig...ég veit samt ekki alveg afhverju! Svo vissulega West Wing.

3. Grænn kostur

4. Á Hverfisgötunni...kærastans hans Kristjáns....þú að taka þig til í jóladinner minnir mig!

5. Bismark kisu.

6. Hvernig gengur með nýja kærastann???
 
haha þetta er skemmtilegt. Var búin að gleyma samlokunum í vöfflugrillinu!!!

Auðvita máttu vera brúðarmey...og helsti ráðgjafi minn í kjólamálum;)
 
smiley áráttan já???

ég hef alltaf verið böggaður mikið út af brosinu mínu...
var t.a.m. kallaður colgate-kjaftur í grunnskóla...

svo þarf nú bara svo lítið til að gleðja mig, þannig að ég brosi kanski meira en góðu hófi gegnir :)

með tattoo-ið...
var búinn að ákveða að fá mér eitt slíkt á bene... og var manaður upp í eitt stk broskall... sé ekkert eftir því ;)
 
Ég líka ;)
 
Burgerinn minn

1. Bestasta vinkonan alltaf, crazy þegar á þarf, samþykkir allar mínar brjáluðu hugmyndir og ert alltaf til í ævintýri!

2. Crazy for you mr DJ og svo myndin Exchange student

3. Martini bianco, hommapasta og kristall af því það sést hverjir drekka kristal!!!

4. Á leikskólanum, í fyrsta skipti sem ég hitti þig eftir að pabbi þinn dó og ég var að spurja þig um það hvernig þér liði og hvernig það væri að eiga ekki pabba! Svo gaf ég þér pabba minn með mér ;)

5. Tígrísdýr!!!

6. Hvenær ætlarðu að koma og búa með mér aftur?
 
Ég var alveg viðbúin því að fá þessa spurningu hahahha London 3 days ;)
 
Hæ bjútí beibí, til er ég og ég lofa að setja þessa útgáfu á mitt blogg líka :)
 
Post a Comment

<< Home

Click Here

This page is powered by Blogger. Isn't yours?