Saturday, December 03, 2005

Kleópatra

Helló

Er komin með einhverja kleópötru klippingu og hef aldrei fengið jafn mikið af jákvæðri athygli á einu kvöldi, hrósunum rigndi yfir mig allt kvöldið í gær í útgáfuhófi JPV Útgáfunnar sem var með einsdæmum skemmtilegt ef einhver var að spá í það. Hitti helling af snilldar fólki sem hefur fylgt mér lengi. Ótrúlega skemmtilegt fólk sem vinnur í þessum bransa.

En sumsé, hárið er geggjað og 7 kíló farin. Keypti miða á Hættu tónleikana og er að reyna að tæla Fish til landsins á Bjarkar tónleika með meiru.

Er búin að vera í efahyggjunni í morgun. Held að það sé spennandi staðreynd í okkar veruleika en svo sannarlega hlutur sem getur leitt mann í endalausar eilífðarpælingar um allt og sennilega valda því að maður gæti ekki labbað út heiman frá sér því samkvæmt efahyggjunni gæti ég allt eins verið heili í krukku og allt annað blekking. Áhugaverð pæling ekki satt?

Comments:
Guð er eg þó dökkhærð sé svona ljóshærð?? ég er ekki að fatta þessa pælingu hjá þér ?? Sorry,en já þú ert alltaf sæt...Til lukke med det hele ;)
 
Post a Comment

<< Home

Click Here

This page is powered by Blogger. Isn't yours?