Monday, July 10, 2006

Og þeir unnu ekki!!!

Iss piss, Les Bleus unnu ekki þrátt fyrir dyggan stuðning frönskudeildar HÍ. Mikið sem mér fannst ég smart í gær að hlaupa að kaupa í grillmatinn og blaðra á meðan um það að við yrðum að drífa okkur, við myndum missa af fyrstu mínútum leiksins o.s.fr. Fannst ég ótrúlega mikil fótboltabulla og var bara að fíla það hlutverk mitt nokkuð vel. Kom heim í tæka tíð til að sjá Zidaninn skora úr vítaspyrnunni og svo var öskrað yfir leiknum. Fannst ótrúlegt að Frakkarnir skyldu ekki taka þetta og þetta eyðilagði áform mín um að horfa bara á fótbolta þegar að öruggt sé að liðið sem ég haldi með vinni leikinn en státa þó af því að hafa náð tveimur af þrem!

Ætlaði að horfa á þetta á Gauknum en sökum hörkunnar nóttina áður, þá meikaði ég ekki annað kvöld inni á reykmettuðum skemmtistað. Horfði því á hann heima í opinni dagskrá en frétti svo af frönskudeildinni sem sat á gauknum, með franska fánann málaðan framan í sig og svona. Við erum svo öflug. Mjög smart finnst mér

Comments: Post a Comment

<< Home

Click Here

This page is powered by Blogger. Isn't yours?